|
Rauðsmári & gulmaðra |
|
|
- taldar góðar fyrir exem og sóríasis
Lífrænn íslenskur rauðsmári og gulmaðra eru lækningajurtir sem öldum saman hafa verið taldar hafa góð áhrif á húðsjúkdóma svo sem exem og sóríasis. Þessar lækningajurtir hafa verið kallaðar blóðhreinsandi enda eru í grasalækningum inntökur jurta taldar æskilegar gegn húðsjúkdómum en ekki eingöngu sem útvortis áburður.
Í tinktúrunni eru einnig birki, brenninetla og fíflarót sem allar eru taldar blóðhreinsandi.
Mælt er með notkun græðikremsins með tinktúrunni.
Innihald
30% vínandi, rauðsmári* (trifolium pratense), gulmaðra* (galium verum), birki* (betula pubescens), brenninetla* (urtica dioeca), túnfífill* (taraxicum officinalis), króklappa* (articum lappa) *lífrænt
Notkun
1 msk (10ml) þrisvar á dag með mat. Ekki skal neyta meira en ráðlagt er. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun. Hættið notkun ef vart verður óeðlilegra einkenna.
Viðvörun
Geymist þar sem börn ná og sjá ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, börn undir 18 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu. Ekki fyrir fólk á blóðþynningslyfjum.
Fæðubótarefni
|
Útsölustaðir:
-
Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.
Anna Rósa grasalæknir hefur um árabil búið til sínar eigin tinktúrur úr íslenskum og erlendum lækningajurtum. Tinktúrurnar hefur hún sérblandað í handa hverjum og einum. Á þeirri reynslu byggir Anna Rósa uppskriftirnar af tinktúrunum sem eru að langmestu leyti úr ferskum íslenskum lækningajurtum. Þær eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar, eins og engifer og sólhattur sem vaxa ekki á Íslandi eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.
|
|