Fjallagrös & fíflarót Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Fjallagrös & fíflarót  - talin hreinsa  meltingu

Lífræn íslensk fjallagrös, túnfíflarót og hvönn eru taldar hreinsa meltinguna, auk þess að vinna gegn uppþembu og vindgangi.

Tinktúran inniheldur einnig baldursbrá og lakkrísrót sem ásamt því að hreinsa meltinguna eru taldar hafa bólgueyðandi áhrif.

Innihald

29% vínandi, fjallagrös* (cetraria islandica), túnfífill* (taraxicum officinalis), hvönn* (angelica archangelica), baldursbrá* (matricaria maritima), lakkrísrót* (glycyrrhiza glabra)

*lífrænt




Notkun

1 msk (10ml) þrisvar á dag með mat. Ekki skal neyta meira en ráðlagt er. Blandist í vatn, safa eða jurtate. Hristist fyrir notkun. Hættið notkun ef vart verður óeðlilegra einkenna.

Viðvörun

Geymist þar sem börn ná og sjá ekki til. Ekki ráðlagt fyrir þungaðar konur, konur með börn á brjósti, fólk með áfengisvandamál, börn undir 18 ára aldri eða ef grunur leikur á jurtaofnæmi. Fæðubótarefni koma ekki í stað lyfja né fjölbreyttrar fæðu. Notist ekki samhliða ljósameðferð eða miklum sólböðum. Ekki fyrir fólk með of háan blóðþrýsting.

Fæðubótarefni

 

Útsölustaðir:

  • Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.

Anna Rósa grasalæknir hefur um árabil búið til sínar eigin tinktúrur úr íslenskum og erlendum lækningajurtum. Tinktúrurnar hefur hún sérblandað í handa hverjum og einum.  Á þeirri reynslu byggir Anna Rósa uppskriftirnar af tinktúrunum sem eru að langmestu leyti úr ferskum íslenskum lækningajurtum. Þær eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar, eins og engifer og sólhattur sem vaxa ekki á Íslandi eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates