Tinktúrur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Anna Rósa grasalæknir hefur um árabil búið til sínar eigin tinktúrur úr íslenskum og erlendum lækningajurtum. Tinktúrurnar hefur hún sérblandað í handa hverjum og einum.  Á þeirri reynslu byggir Anna Rósa uppskriftirnar af tinktúrunum sem eru að langmestu leyti úr ferskum íslenskum lækningajurtum. Þær eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar, eins og engifer og sólhattur sem vaxa ekki á Íslandi eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.

Sólhattur & hvönn

- taldar góðar gegn hálsbólgu, kvefi og flensu

Lífrænn sólhattur, hvönn og vallhumall eru helstu lækningajurtirnar í þessari tinktúru en þær hafa allar verið taldar góðar gegn kvefi, hálsbólgu og flensu.  Einnig inniheldur tinktúran  garðablóðberg, engifer og chilipipar sem samkvæmt gömlum húsráðum reynast vel gegn kvefi og flensu. Nánar ...

Maríustakkur & melissa

- taldar góðar fyrir breytingaskeiðið

Lífrænn maríustakkur er helsta íslenska  lækningajurtin við kvensjúkdómum. Hann er talin góður gegn hitakófi og svitaköstum á breytingaskeiði. Hann er einnig talinn draga úr blæðingum og koma reglu á tíðahringinn. Tinktúran inniheldur lífræna melissu og baldursbrá sem eru taldar styrkja taugakerfið. Að auki eru í blöndunni valhumall og brenninetla sem sömuleiðis  eru taldar hafa góð áhrif á breytingaskeiðið. Nánar ...

Hvönn & klóelfting

- taldar góðar fyrir blöðruhálskirtil

Lífræn ætihvönn, klóelfting og brenninetla eru taldar góðar gegn góðkynja stækkun blöðruhálskirtils. Jurtirnar eru taldar geta hjálpað til við óeðlilega tíð þvaglát jafnt að nóttu sem degi. Nánar ...

Fíflablöð & birki

- talin vatnslosandi

Margar lækningajurtir eru taldar vatnslosandi en að öðrum ólöstuðum eru lífræn túnfíflablöð talin hafa hvað mesta virkni og eru þau aðaluppistaðan í tinktúrunni. Hún inniheldur einnig  birki, klóelftingu, mjaðjurt og gulmöðru sem öldum saman hafa verið taldar vatnslosandi. Nánar ...

Rauðsmári & gulmaðra

- taldar góðar fyrir exem og sóríasis

Lífrænn íslenskur rauðsmári og gulmaðra eru lækningajurtir sem öldum saman hafa verið taldar hafa góð áhrif á húðsjúkdóma svo sem  exem og sóríasis. Þessar lækningajurtir hafa verið kallaðar blóðhreinsandi enda eru í grasalækningum inntökur jurta taldar æskilegar gegn húðsjúkdómum en ekki eingöngu sem útvortis áburður. Í tinktúrunni eru einnig birki, brenninetla og fíflarót sem allar eru taldar blóðhreinsandi. Mælt er með notkun græðikremsins með tinktúrunni. Nánar ...

Fjallagrös & fíflarót

- talin hreinsa meltingu

Lífræn íslensk fjallagrös, túnfíflarót og hvönn eru taldar hreinsa meltinguna, auk þess að vinna gegn uppþembu og vindgangi. Tinktúran inniheldur einnig baldursbrá og lakkrísrót sem ásamt því að hreinsa meltinguna eru taldar hafa bólgueyðandi áhrif. Nánar ...

 

Útsölustaðir:

  • Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates