|
Barnasmyrsl |
|
|
|
Mýkjandi smyrsl með lækningajurtum til varnar bleiuútbrotum og þurri húð. Ver gegn veðri og vindum. Hentar vel á þurrar kinnar og kuldaútbrot.
Inniheldur lækningajurtirnar morgunfrú, haugarfa og kamillu sem allar hafa mikið verið notaðar í smyrsl fyrir ungabörn.
Án rotvarnar- og ilmefna.
Barnasmyrslið frá Önnu Rósu grasalækni er alveg frábært. Ég hef verið með börn sem hafa brunnið á bossanum vegna niðurgangs en með barnasmyrslinu hefur þeim batnað mjög fljótt. Það sem er líka gott er að þau finna ekki sviða eða neitt slíkt þegar smyrsl er borið á. Það er mjög oft þannig að þegar maður ber krem á bossa, þá gráta börnin því þau eru rosalega viðkvæm, en með barnasmyrslinu eru þau alveg róleg. Það er frábært. Áferðin er líka mjög fín. Takk fyrir þetta!
Maria Helena Sarabia, dagmamma
Innihald
ólífuolía (olea europea), býflugnavax (cera alba), sheasmjör (butyrospermum parkii)*, kakósmjör (theobroma cacao)*, morgunfrú*(calendula officinalis), haugarfi* (stellaria media), kamilla* (matricaria recutita), E vítamín (tocopherol) *lífrænt
|
Útsölustaðir:
-
Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.
Frá örófi alda hafa verið unnin smyrsl úr lækningajurtum og hefur Anna Rósa grasalæknir notað slík smyrsl með góðum árangri um árabil. Einstaklingsbundið er hvort fólki hentar betur smyrsl eða hvít krem við húðkvillum. Íslensku lækningajurtirnar eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar.
|
|