Menntun grasalækna Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Anna Rósa er með Dip.Phyt. gráðu í grasalækningum frá The College of Phytotherapy þar sem hún lauk fjögra ára námi árið 1992. Anna Rósa er einnig með ITEC diploma í nuddi (1990) og B.Sc. í viðskiptafræði (2004) frá Háskólanum í Reykjavík.

Anna Rósa er meðlimur í félagi breskra grasalækna, National Institute of Medical Herbalists. Það er elsta félag grasalækna í heimi, stofnað árið 1894. Félagsmenn verða að hafa viðurkennda menntun sem í dag er B.Sc. gráða frá háskólum í Bretlandi. Þeir verða einnig að fara eftir ströngum siðareglum félagsins.

Eftirfarandi háskólar í Bretlandi bjóða upp á B.Sc.-nám í grasalækningum. Tveir þeirra bjóða einnig upp á M.Sc.-nám í grasalækningum. Auk þess er hægt að læra grasalækningar bæði í Bandaríkjunum og Ástralíu og taka fjölda styttri námskeiða í mörgum löndum.

 

 

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates