Apríkósukjarnaolía
Apríkósukjarnaolía (Prunus armeniaca) er unnin úr apríkósukjörnum. Hún er ekki ósvipuð möndluolíu og hefur verið mjög vinsæl í snyrtivörum undanfarin ár. Apríkósukjarnaolía er sérstaklega góð fyrir viðkvæma eða eldri húð og er talin draga úr hrukkumyndun. Lífræn apríkósukjarnaolía er í 24 stunda kremi.
Benzyl alcohol
Þegar hvít krem eru gerð er ekki hjá því komist að nota kemísk rotvarnarefni. Hvít krem innihalda vatn, öfugt við smyrsl, og dugar því ekki að nota náttúruleg rotvarnarefni líkt og E-vítamín. Anna Rósa notar blöndu af phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate og tocopherol. Potassium sorbate er einnig notað sem rotvarnarefni í mat og drykki og tocopherol er E-vítamín. Þessi blanda af rotvarnarefnum, sem notuð er í kremin, er samþykkt af bresku lífrænu vottunarstofunni, Soil Association, og má finna hana í lífrænt vottuðum kremum frá Bretlandi. Benzyl alcohol er í öllum kremum.
Býflugnavax
Býflugnavax (Cera alba) hefur öldum saman verið notað til að þykkja græðismyrsl. Það viðheldur raka húðar, mýkir og græðir. Óbleikt og óunnið býflugnavax er í öllum smyrslum.
Cetostearyl alcohol
Cetostearyl alcohol er bindiefni sem notað er til að binda saman vatn og olíu í hvítum kremum. Cetostearyl alcohol ásamt ethoxylated sorbitan ester er stöðluð formúla sem áratugum saman hefur verið notuð sem bindiefni í snyrtivörur. Formúlan er byggð á efnum unnum úr jurtaríkinu og hentar vel fyrir allar húðtegundir, þar sem ofnæmisviðbrögð hafa verið fátíð. Cetostearyl alcohol er í öllum hvítum kremum.
E- vítamín olía
Náttúruleg E-vítamín olía (Tocopherol), unnin úr soja- og sólblómaolíum sem ekki hafa verið erfðabreyttar. E- vítamín er mikið notað í snyrtivörur, bæði vegna þess að það er náttúrulegt rotvarnarefni og einnig er það talið græðandi og mýkjandi fyrir húðina, ásamt því að varna öldrun. Anna Rósa notar efnablöndu sem rotvörn í hvítu kremin og er E-vítamín eitt af þeim. Að auki er hærra hlutfall af E-vítamíni í 24 stunda kreminu og græðikreminu. E-vítamín er eina rotvarnarefnið í öllum smyrslum. E-vítamín er í öllum kremum og smyrslum.
Ethoxylated sorbitan ester
Ethoxylated sorbitan ester er bindiefni sem notað er til að binda saman vatn og olíu í hvítum kremum. Ethoxylated sorbitan ester ásamt cetostearyl alcohol er stöðluð formúla sem áratugum saman hefur verið notuð sem bindiefni í snyrtivörur. Formúlan er byggð á efnum unnum úr jurtaríkinu og hentar vel fyrir allar húðtegundir, þar sem ofnæmisviðbrögð hafa verið fátíð. Ethoxylated sorbitan ester er í öllum hvítum kremum.
Jojobaolía
Jojobaolía (Simmondsia chinesis) er unnin úr fræjum jojobarunnans sem vex meðal annars í Bandaríkjunum og Mexíkó. Hún viðheldur raka húðarinnar og er talin góð gegn húðsliti. Lífræn jojobaolía er í mæðrasmyrsli.
Kakósmjör
Kakósmjör (Theobroma cacao) er unnið úr ristuðum fræjum kakótrésins og hefur lengi verið notað í snyrtivörur. Í Afríku hefur það öldum saman verið notað til að vernda og græða húð. Kakósmjör er auðugt af E-vítamíni sem viðheldur raka húðarinnar og er talið vernda hana gegn öldrun. Það gengur fljótt inn í húðina og ver hana gegn þurrki og húðútbrotum. Lífrænt kakósmjör er í öllum kremum og smyrslum.
Kvöldvorrósarolía
Kvöldvorrósarolía (Oenothera biennis) er unnin úr fræjum kvöldvorrósarinnar sem vex villt í Evrópu, Norður-Bandaríkjunum og Asíu. Plantan dregur nafn sitt af því að blómin opna sig eingöngu á kvöldin, öfugt við flest önnur blóm. Kvöldvorrósin hefur verið notuð sem lækningajurt öldum saman, en síðustu tvo áratugi hefur olían úr fræjunum náð miklum vinsældum, bæði til inntöku og notkunar útvortis. Kvöldvorrósarolían er sérlega mýkjandi og græðandi fyrir exem og sóríasis. Lífræn kvöldvorrósarolía er í græðikremi.
Möndluolía
Möndluolía (Prunus dulcis) er mikið notuð í náttúrulegum snyrtivörum enda þykir hún henta mjög vel öllum húðgerðum. Hún er auðug af fitusýrum og þykir ákaflega mýkjandi og rakagefandi. Lífræn möndluolía er í handáburði.
Sheasmjör
Sheasmjör (Butyrospermum parkii) er unnið úr hnetum Karitetrésins sem vex aðallega í Afríku. Þar hefur fólk öldum notað sheasmjör til verndar gegn sól og vindum, enda er það sérlega mýkjandi og rakagefandi. Á undanförnum áratug hefur það notið stigvaxandi vinsælda í snyrtivöruiðnaði út um allan heim. Algengt er að sheasmjör í snyrtivörum sé mikið unnið og jafnvel með viðbættum ilmefnum, enda er það ódýrara hráefni en lífrænt og ilmefnalaust sheasmjör. Lífrænt sheasmjör er náttúrulega auðugt af A-, E- og F- vítamínum, sem eru rakagefandi og mýkjandi fyrir húðina. Einnig er talið að sheasmjör dragi úr hrukkumyndun og hafi góð áhrif á húðsjúkdóma, bólgur, sár og brunasár. Að auki er náttúruleg sólarvörn í sheasmjöri (SPF-6). Sheasmjörið sem Anna Rósa grasalæknir notar í kremin er handunnið af þorpskonum í Ghana sem hafa lífsviðurværi sitt af því að vinna sheasmjör samkvæmt ævagömlum aðferðum sem notaðar hafa verið mann fram af manni. Lífrænt sheasmjör er í öllum kremum og smyrslum.
Ólífuolía
Ólífuolía (Olea europaea) hefur frá ómunatíð verið talin góð fyrir húðina og er bæði mýkjandi og nærandi. Hún viðheldur teygjanleika húðarinnar og varnar ótímabærri öldrun. ÓIlífuolía inniheldur E- og A- vítamín og er sérstaklega góð fyrir þurra húð og sprungur. Hún hefur alla tíð verið mikið notuð í krem og smyrsl. Olífuolía er í öll kremum og smyrslum.
Phenoxyethanol
Þegar hvít krem eru gerð er ekki hjá því komist að nota kemísk rotvarnarefni. Hvít krem innihalda vatn, öfugt við smyrsl, og dugar því ekki að nota náttúruleg rotvarnarefni líkt og E- vítamín. Anna Rósa grasalæknir notar blöndu af phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate og tocopherol. Potassium sorbate er einnig notað sem rotvarnarefni í mat og drykki og tocopherol er E-vítamín. Þessi blanda af rotvarnarefnum, sem notuð er í kremin, er samþykkt af bresku lífrænu vottunarstofunni, Soil Association, og má finna hana í lífrænt vottuðum kremum frá Bretlandi. Phenoxyethanol er í öllum kremum.
Potassium sorbate
Þegar hvít krem eru gerð er ekki hjá því komist að nota kemísk rotvarnarefni. Hvít krem innihalda vatn, öfugt við smyrsl, og dugar því ekki að nota náttúruleg rotvarnarefni líkt og E- vítamín. Anna Rósa grasalæknir notar blöndu af phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate og tocopherol. Potassium sorbate er einnig notað sem rotvarnarefni í mat og drykki og tocopherol er E-vítamín. Þessi blanda af rotvarnarefnum, sem notuð er í kremin, er samþykkt af bresku lífrænu vottunarstofunni, Soil Association, og má finna hana í lífrænt vottuðum kremum frá Bretlandi. Potassium sorbate er í öllum kremum.
|