Ilmolíur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Bergamot

Bergamot ilmolían (Citrus bergamia) hefur lengi verið notuð sem bragðefni í matvörum og ilmefni í snyrtivörum. Hún er til dæmis notuð sem bragðefni í Earl Grey tei. Bergamot þykir sótthreinsandi og er gjarnan notuð við ýmiss konar húðútbrotum.

Lífræn Bergamot ilmolía er í handáburði.

Eucalyptus

Eucalyptus ilmolía (Eucalyptus globulus) hefur lengi verið notuð til að græða sár og stilla kláða. Hún hefur bæði kælandi og endurnærandi áhrif á þreytta fætur.

Lífræn eucalyptus ilmolía er í fótakremi.

Lavender

Lavender ilmolían (Lavendula officinalis) er talin hafa mikinn lækningamátt og hefur öldum saman verið notuð í náttúrulegar húðvörur. Hún er talin góð gegn exemi, sóríasis og sveppasýkingum og hefur róandi áhrif. Lavender ilmolían er einnig talin bólgueyðandi, kláðastillandi og græða sár.

Lífræn lavender ilmolía er í dagkremi, græðikremi og sárasmyrsli.

Neroli

Neroli ilmolían (Citrus aurantium) er unnin úr blómum appelsínutrésins. Hún er talin hafa góð áhrif á ör og slit, ásamt því að verja húðina gegn hrukkum og hentar því vel fyrir þroskaða húð.

Neroli ilmolía er í 24 stunda kremi.

Piparmynta

Piparmyntu ilmolía (Mentha piperita) þykir sérstaklega kláðastillandi og frískandi. Hún er einnig talin sótthreinsandi og vírusdrepandi, ásamt því að vera bólgueyðandi.

Lífræn piparmyntu ilmolía er í fótakremi.

Rósaolía 

Rósaolía (Rosa damascena) þykir hafa sefandi áhrif á húð og er mikið notuð í snyrtivörur. Hún er einnig talin góð gegn þurrki og æðasliti, ásamt því að draga úr hrukkum, og hentar því vel fyrir þroskaða húð.

Rósarolía er í 24 stunda kremi.

Sítrónugras

Ilmolía úr sítrónugrasi (Cymbopogon flexuosus) er mikið notuð í snyrtivörur enda gefur hún þægilegan sítrónuilm. Sítrónugras er einnig talið hafa bakteríudrepandi áhrif og því tilvalið að nota það í handáburð.

Lífræn sítrónugras ilmolía er í handáburði.

Tea tree

Tea tree ilmolían (Melaleuca alternifolia) er langþekktust sem sveppadrepandi og er ein af fáum ilmolíum sem mælt er með að notuð sé óblönduð á húð. Þekkt ráð við sveppasýkingum í tánöglum er að setja 1-2 dropa af ilmolíunni á nögl á hverjum degi þar til sveppasýkingin er horfin. Tea tree ilmolía er einnig vel þekkt sem bakteríu- og vírusdrepandi, ásamt því að vera bólgueyðandi.

Lífræn tea tree ilmolía er í fótakremi.

 

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates