Græðikrem Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

GræðikremGræðandi og kláðastillandi krem með lífrænum lækningajurtum. Notað við þurrki, exemi og sóríasis. 

Græðikremið inniheldur lífrænan vallhumal, morgunfrú og kamillu sem notaðar hafa verið öldum saman gegn húðsjúkdómum. Inniheldur mikið af kakó- og sheasmjöri ásamt kvöldvorrósa- og E- vítamínolíu sem gefa nauðsynlegan raka og mýkt. Græðikremið inniheldur einnig lífrænar lavender- og piparmyntu ilmolíur sem eru kláðastillandi.

Einnig er mælt með innvortis inntöku af rauðsmára og gulmöðru tinktúru gegn exemi og sóríasis.


Í 36 ár hef ég glímt við sóríasis og hef lengi leitað að græðandi kremi sem hefði gagnger áhrif á sjúkdóminn. Hef sennilega eins og flestir sóríasissjúklingar prófað öll þau krem sem nöfnum tjáir að nefna. Græðikremið frá Önnu Rósu grasalækni er fyrsta kremið sem hefur á áhrifaríkan og viðvarandi hátt dregið úr bólgum í sárunum og þar sem húðin er þynnst eru blettirnir á undanhaldi. Það er auk þess hæfilega feitt, þannig að ég get borið það á mig á morgnana eftir sturtu, án þess að það smitist í fötin mín. Síðast en ekki síst hef ég losnað við kláðann, sem ég var illa haldin af áður en ég tók að nota græðikremið.

Guðrún Ingólfsdóttir, íslenskufræðingur

Innihald

vatn (aqua), ólífuolía (olea europaea), vallhumall* (achillea millefolium), kamilla* (matricaria recutita), morgunfrú* (calendula officinalis), sheasmjör (bytyrospermum parkii)*, kakósmjör (theobroma cacao)*, cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, kvöldvorrósarolía (oenothera biennis)*, E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, lavender (lavendula officinalis)*, piparmynta (mentha piperita)
*lífrænt

 

Útsölustaðir:

  • Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.

Anna Rósa grasalæknir býr til öll hvít krem frá grunni úr bestu fáanlegum hráefnum. Íslensku lækningajurtirnar eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar. Kremin innihalda öll hátt hlutfall af lífrænu shea-smjöri og kakósmjöri sem eru einstaklega nærandi og rakagefandi fyrir húðina.

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates