Fótakrem Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

FótakremKælandi og kláðastillandi fótakrem með lífrænum lækningajurtum. Mýkir þurra húð, græðir sprungur og vinnur gegn sveppasýkingum.

Inniheldur lífrænar ilmolíur svo sem eucalyptus,  piparmyntu og tea tree sem örva blóðrásina og stilla kláða.







Anna Rósa hefur nú sett í framleiðslu fótakrem ásamt ýmsum öðrum húðkremum. Ég sem fótaaðgerðafræðingur er svo heppin að hafa fengið að prófa þetta frábæra íslenska fótakrem. Fótakremið er ég í alla staði mjög ánægð með þar sem það fer mjög vel inn í húðina, lyktar lítið og skilur ekki eftir sig fitu. Það er einnig gott fyrir allar húðgerðir. Einnig er gott að nudda upp úr kreminu og tala skjólstæðingar mínir um notalega tilfinningu í húðinni og almenna vellíðan í fótunum eftir að kremið er borið á.

Ég mæli óhikað með fótakremi Önnur Rósu og óska henni góðs gengis með framleiðslu fleiri tegunda húðkrema.


Guðbjörg Hafsteinsdóttir, fótaaðgerðafræðingur

Innihald

vatn (aqua), ólífuolía (olea europaea), vallhumall* (achillea millefolium), kamilla* (matricaria recutita), morgunfrú* (calendula officinalis), sheasmjör (bytyrospermum parkii)*, kakósmjör (theobroma cacao)*, cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan esterphenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, E vítamín (tocopherol), eucalyptus (eucalyptus globulus)*, piparmynta (mentha piperita)*, tea tree (melaleuca alternifolia)*   
*lífrænt

 

Útsölustaðir:

  • Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um land allt.

Anna Rósa grasalæknir býr til öll hvít krem frá grunni úr bestu fáanlegum hráefnum. Íslensku lækningajurtirnar eru handtíndar á svæðum fjarri umferð og tilbúnum áburði. Erlendu lækningajurtirnar eru undantekningalaust lífrænt vottaðar. Kremin innihalda öll hátt hlutfall af lífrænu shea-smjöri og kakósmjöri sem eru einstaklega nærandi og rakagefandi fyrir húðina.

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates