|
Rakagefandi 24 stunda krem með lífrænum lækningajurtum fyrir venjulega, mjög þurra eða þroskaða húð.
Hentar vel bæði kvölds og morgna ásamt því að vera tilvalið undir farða.
Inniheldur E- vítamín, apríkósukjarnaolíu og rósaolíu sem eru sérstaklega góðar fyrir þroskaða húð. 24 stunda kremið nærir, mýkir og viðheldur náttúrulegum raka húðar.
24 stunda kremið frá Önnu Rósu er einn af þessum daglegu hlutum í lífinu sem ekki er hægt að vera án. Kremið heldur rakajafnvæginu í húðinni ótrúlega vel og ég nota það bæði kvölds og morgna. Ég er ein af þessum 40 ára sem er með feita húð að upplagi, en byrjaði að finna fyrir þurrki í húðinni í sumar. Ég er búin að prófa allskonar krem og árangurinn verið mjög misjafn. Frá því að ég fór að nota 24 stunda kremið finnst mér húðin vera þéttari og mýkri. Ég get hiklaust mælt með 24 stunda kreminu við hvern sem er. Kremið er drjúgt, smýgur vel inn í húðina og það lyktar ofsalega vel.
Unnur Stefánsdóttir, skjalastjóri
Það sem er svo sérstakt við 24 stunda kremið er hversu auðvelt er að bera það á sig og svo er það ótrúlega drjúgt. Mér finnst það ganga mjög vel inn í húðina og mýkja hana og svo er góð lykt af því en ekki of sterk. Ég er 64 ára gömul og hef ég alltaf notað dýr krem en verðið á þessu kremi er gott og svo dugar það svo lengi þannig að hér eftir nota ég 24 stunda kremið. Takk fyrir Anna Rósa.
Björg Ragnarsdóttir, móttökuritari
Innihald
vatn (aqua), ólífuolía (olea europaea), vallhumall* (achillea millefolium), kamilla* (matricaria recutita), morgunfrú* (calendula officinalis), sheasmjör (bytyrospermum parkii)*, kakósmjör (theobroma cacao)*, cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, apríkósukjarnaolía (prunus armeniaca)*, E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, rósaolía (rosa damascena), neroli (citrus aurantium) *lífrænt
|