|
Krem, smyrsl og tinktúrur úr íslenskum lækningajurtum |
|
Haugarfi er ákaflega græðandi og mýkjandi útvortis fyrir sár, sprungur og húðútbrot. Hann þykir einnig bæði kælandi og kláðastillandi. Ferskur lífrænn haugarfi er í sára-, barna-, og mæðrasmyrsli.
Rauðsmári hefur alla tíð verið talin góður gegn húðsjúkdómum svo sem exemi og sóríasis. Ferskur lífrænn rauðmári er í tinktúrunni Rauðsmári & gulmaðra.
Kamilla hefur öldum saman verið notuð til lækninga og er talin róandi fyrir meltingu og góð gegn kvíða og svefnleysi. Löng hefð er fyrir því að nota kamillu í krem og smyrsl. Lífræn kamilla er í öllum kremum og barna- og mæðrasmyrsli.
Sólhattur er talinn styrkja ónæmiskerfið og þykir góður gegn hálsbólgu, kvefi og flensu. Lífrænn sólhattur er í tinktúrunni Sólhattur & hvönn.
Vallhumall er talinn góður gegn kvefi og flensu ásamt þvi að vera notaður útvortis til að græða sár. Ferskur lífrænn vallhumall er í tinktúrunum Sólhattur & hvönn og Maríustakkur & melissa. Lífrænn vallhumall er í öllum hvítum kremum og í sárasmyrsli.
|
|
Krem með lækningajurtum
Lífrænar snyrtivörur
Dagkrem, 24 stundakrem, hand- áburður, fótakrem og græðikrem. Innihalda lífrænar íslenskar lækningajurtir. Engin paraben rotvarnarefni eða kemísk ilmefni. Nánar
Smyrsl með lækningajurtum
Græðandi og mýkjandi 
Sárasmyrsl, barnasmyrsl og mæðrasmyrsl. Innihalda lífrænar íslenskar lækningajurtir. Alveg án rotvarnaefna, lanólíns eða kemískra ilmefna. Nánar
Tinktúrur fyrir heilsuna
Íslenskar lækningajurtir 
Tinktúrur eru aldagömul vinnsluaðferð grasalækna þar sem virk efni úr lækningajurtum eru leyst upp í vínanda. Tekið inn sem fæðubótarefni. Nánar
|
Útsölustaðir: Fjarðarkaup, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið, Lifandi markaður, Heilsuver,Yggdrasill, Garðheimar, Femin.is, Bútik.is, Nammi.is og sjálfstæð apótek og verslanir um allt land.
|